
Nú mun fyrsta færsla bókaklúbbsins okkar verða að veruleika. Ég (Maja) veit ekki hvernig formaður okkar, Júlíus Arnarsson, mun taka í það að ég hafi flutt bloggið hingað en ég er nú ekki sjálfskipaður heimasíðusmiður fyrir ekki neitt.
Eins og þeir muna sem voru á stofnfundinum góða, þá fékk ég að velja fyrstu bókina sem okkur ber öllum að lesa fyrir 1. febrúar næstkomandi. Bókin sem varð fyrir valinu er 100 ára einsemd eftir Gabriel Garcia Marquez. Þar sem ég las þess bók fyrir rétt tæpum 100 árum ólgar í mér spenna við að lesa hana aftur. Ég trúi ekki öðru en að hún verði betri með aldrinum, svona eins og karlmenn [ehemm] og rauðvín. En eins og þið öll vitið núna eflaust þá er skruddan uppseld á klakanum þannig að það er um að gera að panta sem fyrst af amazon - skylst að það sé líka fínt að panta þarna used and new elementinu sem þeir bjóða uppá.
Ég veit ekki alveg hvernig fyrirkomulagið er með val á næstu bók, en formaðurinn gerði fína reglugerð sem hlýtur að hafa gert grein fyrir því hvernig val á næstu bók deilist á milli meðlima. En samkvæmt brigðluðu minni mínu þarf sá sem næst velur bók að vera búin að tilkynna það (eða velja) fyrir 15 janúar. Frá 1 febrúar höfum við 2 mánuði til að lesa hana og verður spennandi að sjá hver næsta bók verður (það þarf lítið til að gleðja námsmannahjartað)
Ég sendi öllum póst sem ég mundi eftir, ef ég er að gleyma eitthverjum endilega látið mig vita og ég bæti viðkomandi á meðlimalistan og póstlistan að sjálfsögðu, þó ég sé á því að þetta verði staðurinn þar sem við tjáum okkur sem mest.
Annars segi ég bara gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Kveðja
Maja